20.01.2008 12:26:56 / niflungur
Þó að það líti alveg eins út og gamla árið þá fylgir nýju ári alltaf einhverjar nýjar eftirvæntingar.
Fólk býst alltaf við einhverju nýju og betra í byrjun nýs árs.
Ætli það hafi alltaf verið þannig? Hvernig ætli forfeður okkar hér á ísaköldu landi hafi fundist um nýtt á ? miðað við það sem ég hef lesið þá var íslenska þjóðin mjög fátæk hér áður fyrr.
En pællið í því, það eru ekki mikið lengra en svona 70-100 ár síðan þjóðin var á barmi hungurdauða. Í dag yrði það eflaust kallað hungursneyð en hér áður fyrr var það bara hluti af daglegu lífi að buast við þvi að lifa ekki veturinn af vegna þess að það var ekki til nógur matur fyrir alla á heimilinu. Ísland var lengi vel langt á eftir evrópu, t.d þá fór voðalega lítið fyrir iðnbyltingunni á íslandi samanborið við evrópu t.d risu hér eingar stórar verksmiðjur fyrr en síldin fór að veiðast um ca 1920-30. Var það vegna þess að íslenskuþjóðinni skorti frumkvæði til eða jafnvel fjármagn til þess að fara út í einhverjar stórar framkvæmdir? Já og nei. Vissulega var fjármagn að skornum skammti á íslandi hér áður fyrr sem hindraði það að hin almenni borgari gat farið í einhverjar einherja framkvæmdir, það hefur aldrei skort frumkvæði og vilja hjá íslendingum til framkvæmda, en samhliða fátækt hér fyrr á öldum voru líka stöðulögin. Lög sem neyddu alla sem ekki áttu jörð eða voru leiguliðar að ráða sig í vinnu hjá landeiganda, voru þessi lög sett með það fyrir augum að tryggja ódýrt vinnuafl og með þessum lögum var óheimilt fyrir almening að setjast niður og stofna þorp nema ef einhver efnamaður átti landið og það voru skeppnur á staðnum til að fóðra. En þrátt fyrir fátæk hefur íslenska þjóðinn alltaf verið stolt stundum kannski einum of stolt og ekki viljað horfast í augu við galla okkar.
Eflaust hefur nýtt ár ekki haft mikil áhrif hér fyrr á öldum, menn hafa ekki búist við því að það yrðu miklar breyttingar með nýju ári, tíminn var nánast búinn að standa í stað í fleiri aldir og það urðu ekki miklar breytingar á högum fólks fyrr enn um og eftir fyrri heimsstyröldina og svo aftur um hinna síðari en þá fyrst urðu rótækar breytingar hér á landi og bara núna á seinnustu 20-30 árum höfum við verið að nálgast evrópu í lífsgæðum.
En nóg um þetta í billi
»
01.01.2008 18:15:40 / niflungur
Jæja svo þetta er 2008. í fyrstu virka það bara eins og 2007 en það er samt full snemmt að dæma um það finnst ykkur ekki he he. Nýtt ár ný tækifæri stendur það ekki einhverstaðar?
Hvernig leggst svo nýtt ár í þig kæri lesandi?
Helduru að þetta ár verði eitthvað betra en það sem var að enda?
Mörgum finnst eins og nýtt ár sé eins konar nýtt upphaf byrjunarreitur upp á nýtt fyrir kannski utan það að þú færð eingan 20.000 fyrir að fara yfir byrjunarreit he he.
Hvað finnst þér?
»
01.01.2008 00:33:25 / niflungur
Gleðilegt nýtt ár takk fyrir það gamla
»
22.12.2007 16:58:00 / niflungur
Vildi bara óska öllum þeim sem lesa blogið mitt gleðilegra jóla.
skrifa meiar seinna.
»
13.12.2007 20:16:43 / niflungur
Það virðist ekki skipta miklu hvað ég skrifa um það er voða lítið um comment frá ykkur.það er frekar leiðinlegt. Ég verð bara að segja það. Og líka að sá sem skrifaði
seinast í gestabókina var mamma 2006 frekar ömurlegt
»
08.12.2007 14:35:12 / niflungur
Jólasveinar frá Ströndum.
Litlipungur. Lútur. Lækjaræsir. Redda. Rauður. Sledda. Steingrímur. Syrjusleikir. Tífill.(Tífall) Tútur. Örvadrumbur. Baggi. Bjálfans.(bjálmans)barnið Bjálfinn.(Bjálminn) Froðusleikir.
Börn grýlu.
Askur. Ausa. Bikja. Bokki. Boli. Botni. Brynki. Bútur. Dallur. Dáni. Djangi. Flaska. Gráni. Hnúta. Hniðja. Hnífil. Hötur. Ípa. Jón, tveir synir. Kleppur. Knútur. Kútur. Kyllir. Kríppa. Láni. Lánleggur. Láppur. Leiðindarskjóða. Leppatuska. Leppur. Loðin. Læja. Musull. Narfi. Nýpa. Nútur. Nægja. Poki. Pútur. Skota. Skrápur. Sláni. Stampur. Stefna. Stefnir. Stigill. Stokur. Strútur. Stympa. Stútur. Sturla. Syrpa. Tafur. Tuska. Týpa. Tæja. Þóra. Þrandur. Þröstur.
Gustur, eiginmaður.
Þetta er listi yfir þá jólasveina sem voru þekktir á ströndum fyrr á öldur.
Ég veit ekki hvert hlutverk einstakra sveina var né hvort það var nokkurt.
Seinni lystin er yfir upphaflegu börn Grýlu en þau eru fimmtíu talsins einnig er fyrri eiginmaður hennar talin með en seinni maður hennar var eins og margir vita leppalúði.
»
05.12.2007 21:46:37 / niflungur
Núna eru vinir okkar í græna grátkórnum byrjaðir aftur en að þessu sinni eru það ekki framsókn heldur vinstri grænir.
Eins og allir vita vilja þeir ekkert frekar en að vera á móti allt og öllum, núna eru þeir á móti því að stytta eða öllu heldur setja tímamörk á ræðutíman, afhveju? Jú þeir segja að það sé verið að vega að málfrelsi inna alþingis.
En er það sannleikurinn? Er það raunverulega ástæðan? Svarið er nei.
Hin raunverulega ástæða er sú að ef það koma tímamörk á ræður þingmanna það geta VG ekki lengur stundað málþóf, sem er þeirra aðferð til að drepa tíman og fresta afgreiðslu mála.
Málþóf er búið að vera leiðindar ávani hjá allaböllum í alltof mörg ár og alltaf er tilgangurinn sami að tefja afgreiðslu þingmála.
Þeir eru að reyna að halda því fram að langur ræðutími sé eina vopnið til að hindra að málum sé flýtt í gegnum þingið.
Ef málþóf er eina vopnið þá er stjórnarandstaðan í vondum málum. Þá eiga þeir sem sagt erfitt að koma með rök með eða á móti við venjulegar aðstæður.
Fyrst að málþóf er svona mikilvægt til að tefja og hægja á þinginu hvernig væri þá að stytta sumar og jólafrí þingmanna en meira um það mál síðar.
Mér finnst að þingmenn stjórn og stjórnarandstöðu ættu að beitta málefnalegum aðferðum en ekki skýtkasti og málþófi og ekki stunda framíköll eins og eru farin að verða vinsæl, sérstaklega hjá okkar ástkæru stjórnarandstöðu.
»
03.12.2007 20:27:17 / niflungur
Jæja þá er komið að því. Ég bara get ekki þagað lengur mig langar að segja nokkur orð um græna grátkórinn eða stjórnarandstöðuna.
Nú það vita það nú allir að VG eru búinir að vera stjórnendur grátkórsinns undan farin ár, þeir hafa verið að gráta yfir öllu allt frá hvað sumir hafa það betra en aðrir og til þess hvað þeir eru búnir að vera lengi í stjórmarandstöðu. En það er komin nýr kór, Framsóknarflokkurinn og þeir gráta hátt þessa dagana. En jú það verður að vorkenna þeim því sjálfstæðisflokkurinn var svo vondur við þá eftir kosningar, vildi ekki leyfa þeim að vera lengur í stjórn. Við hverju bjuggust framsóknarmenn að eftir að fá lítið sem ekkert fylgi að kjósendur vildu hafa þá lengur í stjórn, ef framsóknarflokkurinn hefði haldið áfram í stjórn þá hefði það verið jafngildi þess að segja að kjósendur hefðu ekkert vald og ekki sé hlustað á þá. Ég er ekki að segja að aðferð Sjálfstæðismanna hafi verið rétt en eftir á að hyggja þá var það rétt hjá þeim að halda ekki áfram í stjórn með framsókn.
Svo kemur að borgarstjórn og öllu málinu sem fylgir því.
Eflaust eru það nokkrir sem halda því fram að það hefði verið gott á sjálfstæðisflokkurinn að vera hent úr meirihluta samstarfi við frammsókn eftir það sem þeir gerðu framsókn og eflaust halda margir að þetta hafi verið hefnd fyrir það.
Mín skoðun er sú að þetta hafi ekki verið hefnd heldur fýlla í einum manni þ.e. Alfreð Þorsteinssyni
maður sem var með 511.000 í mánaðarlaun fyrir að sitja í nefnd og gera sem minnst.
Þetta er maður sem sagði um skuld LHS við byrgja að “ráðherra sem tekur ekki á vandanum er ekki hæfur sem heilbrigðisráðherra”. Ég veit ekki betur er framsóknarflokkurinn hafi verið með heilbrigðisráðuneytið undanfarinn 12 ár og sjáðu bara hvernig það gekk, spítalarnir hafa aldrei skuldað meira og samt er verið að eyða milljónum í nefndir og annað dútl sem framsóknarflokkurinn var að leika sér með.
Nú aftur að grátkórnum, eins og flestir hafa tekið eftir þá er kominn nýr formaður hjá bændaflokknum og hann er varla búinn að taka við en þegar hann er farinn að gagnrýna allt sem forverar hans og fyrrum samherjar hafa gert. Mér finnst minnið hjá Guðna vera frekar lítið vegna þess að það er ekki langt síðan hann var í stjórn og samt lætur hann eins og hann hafi verið í stjórnarandstöðu í fleiri ár. Undarlegt hvað allir gerðu allt vitlaust áður en Guðni tók við.
Að lokum langar mig að spyrja, hvað í andskotnum er að Kolbrúnu vinstri græna femenista nr 1?
hætta að aðgreina kyn á ungabörnum er ekki allt í lagi.
Og svo er orðir ráðherra virðigartitil það er ekki verið að kyngreina það frekar en annað.
Þetta er virðigartitil sem hún mun vonandi aldrei bera.
»
10.11.2007 10:05:16 / niflungur
Jæja góðan daginn hér hvað er að frétta.
allt gott hér bara fer á árshátíð í kvöld og sona bara stuð.
maría er byrjuða að lappa smá en er samt eitthvað smeyk einnþá sem er alveg skiljanlegt.
nú mig langar að benda þeim sem kikja hér við að það er allt í lagi að kvíta fyrir sig og jafnvel skilja
eftir smá coment ha hvernig líst ykkur á það.
en nóg um bull í billi
»
17.10.2007 10:58:46 / niflungur
Nýtt blogg bara hér á ferð. Hvað er að sjá þetta, strákurinn bara farin að gera eitthvað.
Margt búið að gerast þennan tima sem ég hef ekki gert neitt hér, framsóknarmenn breyttust ekkert og héldu uppteknum sið spilling og eiginhagsmunasemi í fyrirrúmi þar og svo þegar upp um þá komst var farið að grenja, ekkert nýtt. En ég ætla ekki að fara að eyða orku í það að tala um borgar málin hér enda ekki öll kurl kominn til grafar í þeim málum.
Þurý til hamingju með mótorfákinn, já það er rétt þurý litla systir var að kaupa sér mótorhjól,
voða happy bara. Í öðrum fréttum er þetta helst María er kominn með í eyrun aftur ekki gaman,
hrikalegt hvað það er lagt mikið á þetta barn ný búinn í 4 vikna lyfjameðferð og þarf að byrja aftur á
lyfjum, samt ekki eins sterkum og seinast sem var bara rugl.
Nei bryndís ég var ekki þunglyndur þegar ég samdi ljóðið gleði hér að neðan bara eitthvað sem kom
upp í hausinn minn at the time.
Jæja ég hef ekki mikið meira að segja í bili svo þangað til næst bæ bæ
»
22.09.2007 00:40:16 / niflungur
Hvar varð um gleði mína.
Sem vitjaði mín sem ungur drengur.
Hélt fyrir mér vöku,
óþrejufullur eftir næsta degi.
Hvar er hún nú?
Lengi ég leitaði.
Á fullum börum,
Í tómum sölum.
Einn lengi vel.
Hvergi var gleði að finna.
Hve lengi ég leitaði veit ei nein
Er ég búinn að finna hana nú?
Eingin veit.
Hve lengi mun ég leita?
Það mun framtíðin leiða í ljós.
En svo lengi sem ég lifi.
Heldur leitin áfram.
Til eylífðar.
»
18.09.2007 13:59:54 / niflungur
Ég var að skoða síðu á netinu fyrir stuttu þar sem maður var að tala um það að margar af perlum Íslenskrar dægurtónlistar séu þýddar útgáfur á erlendum lögu. Nú er það ekki ætlun mín að dissa greinarhöfund en það er vel þekkt staðreind að mörg Íslensk dægurlög eru coverlög. Hver ástæðan fyrir því er er mér hulin ráðgáta, kannski er það hugmyndaleysi okkar fremstu laga og texta höfunda eða er einfaldlega verið að fara auðveldu og öruggu leiðina? Vandi er um slíkt að spá en það er alfarið mín skoðun að ef við íslendingar ætlum að standa undir nafni sem tónlistar þjóð þá verðum við að gefa ungu tónlistarmönnunum okkar fleiri tækifæri. Of lengi hefur þetta ógeðslega fyrirbæri sem kallast ballhljómsveitir ráðið ríkjum hér það er kominn tími til að þær verði bannaðar í íslensku útvarpi og meiri áheyrsla verði lögð á nýjar hljómsveitir. Og nei við viljum ekki nýtt þjóðhátiðarlag fyrir næstu verslunarmannarhelgi þau eru ömurleg.
Svo er líka um að gera fyrir okkur hin almenna borgara að fara meira á tónleika með ungum böndum, ekki fara bara til að fá sér bjór, fara og kinnast nýjum böndum, nýjum hljómum. Ég ætla alavega að reyna að vera duglegri við það.
»
27.08.2007 11:33:33 / niflungur
Í dag var fyrsti dagur maríu í leikskóla. svaka stuð hjá minni auðvita, í fyrstu var hún bara frekar hissa á öllum þessum grátandi börnum en svo eftir smá stund þá byrjaði hún bara að vera hún sjálf, fékk bolta og sama hvað aðrir krakkar reyndu að taka boltan af henni þá sleppti mín ekki, var bara frekk á móti eins og ömmur og frænkur hennar æ fyrirgefið ákveðin eins og ömmur og frænkur, nema þurý hún er bara frekk.
En annars þá var þetta bara róleg helgi, ég að vinna erla kom frá Akureyri og maría hjá afa og
ömmu í grindó,heyrðu jú þessi svaka duglega stóð bara upp á miðju gólfi á föstudag og tók
nokkur skref sko mína en það er ekki mikið meira að segja í billi svo þangað til næst
bæbæ
»
21.08.2007 13:40:03 / niflungur
Velkominn í þjónustusímann á Kleppi.
ef þú þjáist af:
Þráhyggju, skaltu ýta í sífellu á 1….
Ósjálfstæði, skaltu fá einhvern til að ýta á 2…
Klofnum persónuleika, skaltu ýta á 3, 4, 5 og 6…
Ofsóknarbrjálæði, þá vitum við hver þú ert og hvað þú vilt. Biddu á línunni svo við getum rakið samtalið…
Ranghugmyndum, veldu 7 og við gefum þér samband við móðurskipið…
Þunglyndi, þá skiptir ekki máli á hvaða hnapp þú ýtir - það svarar þér enginn hvort eð er...
Lesblindu, skaltu velja 69696969696969….
Taugaveiklun, skaltu fitla við ferninginn þar til einhver svarar…
Minnisleysi, skaltu velja 8 og segja nafn þitt, kennitölu, símanúmer, fæðingardag, heimilisfang, skónúmer og fullt nafn móður…
Óákveðni, skaltu skilja eftir skilaboð á eftir tóninum eða undan tóninum eða eftir tóninum. Vinsamlega bíðið eftir tóninum…
Skertu skammtímaminni, veldu 9…
Skertu skammtímaminni, veldu 9…
Skertu skammtímaminni, veldu 9…
»
16.08.2007 11:32:54 / niflungur
Mættur aftur á hin víða völl internetsins og hvað er að frétta. Jú
samkvæmt fréttablaðinu á mánudag minnir mig var bara eitt hús opið
á fiskideginum mikla í ólsfsfirði en það var hjá þeim loga og
svanhildi. Mér finnst þetta frekra mikil vanvirðing við alla þá sem
tóku þátt og opnuðu hús sín að fjalla bara um einhvern fréttalesara
ekki fréttamann því hann logi les bara fréttir og er frægur fyrir
það eitt, hvað meira jú löggan ætlar að fara að taka betur á
drykkjuskap í bænum eða var það ætla þeir að vera sínilegri niður í
bæ um helgar? Ég man það ekki en ég man þegar ég var um 18-19 ára
sem sagt fyrir mörgum árum þá var alltaf löggubíl fyrir framan
héraðsdóm þar sem pylsuvagn er núna kannski þeir ættu bara að fara
að taka upp á því á ný að vera með bíll niður í bæ og já ekki
sleppa þeim sem eru með skírlslæti og barsmíðar loka þá inni láta
það sofa úr sér inni klefa vakna við verstu þvinku ever múhaha þá
kannski læra þessir aðilar eitthvað í staðinn fyrir að segja á
mánudegir “löggan gerði ekki neitt ég barði fullt af liði niður í
bæ um helgina” en hvað um það varð bara að láta vita hvað ég hef
verið að pælla undanfarna daga svona er að vera í sumarfríi maður
fer að hugsa of mikið he he annars þá er carmen mín farinn aftur
heim til svíþjóðar, það var æðinslegt að hafa hanna svona lengi hjá
mér þó svo að við vorum ekki alltaf sammála en það er bara vegna
þess hve lík við erum lol. Jæja best að fara að hætta þessu
heyrumst síðar niflungur
»
Síður:
1 2 3 ...
6